Fara í efni

MIKIL MISTÖK

Yfirlýsingar forsætisráðherra landsins eru til þess fallnar að ónýta öll mál sem höfðuð verða gegn svindlurum hrunsins. Hún lýsir því yfir að hún "fagni handtökunum"! Hvorugur þessara manna hefur verið ákærður, hvað þá dæmdur. Ef ég væri tekinn höndum af lögreglunni, vegna gruns um brot og forsætisráðherra landsins og æðsti handhafi framkvæmdavaldsins lýsti ánægju sinni með handtökuna, þætti mér einsýnt að ég myndi ekki njóta sanngjarnar málsferðar. Forsætisráðherra hlýtur að segja af sér eftir þessi örlagaríku mistök.
mkv
Hreinn K