Fara í efni

NÚ ÞARF FRÁBÆRA FLOKKINN!

Ögmundur, nú er lag. Það er löngu ljóst að þú átt enga samleið með þessum ákvörðunarfælnu Grænjöxlum sem þú hefur kennt þig við fram að þessu. Við, fólkið í landinu þurfum ekki fólk á þingi sem sérhæfir sig í að taka mál til skoðunar þegar skaðinn er skeður. Það er nefnilega svo að það er of seint í rassinn gripið þegar búið er að gera í buxurnar. Þetta vita flestir. Það sem þú þarft að gera núna er að fara fram á eigin forsendum, fá með þér gott fólk og stofna eigin flokk. Þú gætir kallað hann "Frábæra Flokkinn". Og það yrði leikur einn fyrir þig að ná kjöri. Þú bara lærir nokkra brandara, gerir eitthvað sniðugt  - eins og t.d. að bora í nefið eða prumpa í beinni útsendingu og fylgið mundi sópast að þér. En til að vera öruggur með að fá gott fylgi væri heppilegast fyrir þig að fá þá Spaugstofumenn með í framboð. Þá ættir þú Forsætisráðherrastólinn vísan. Svo áfram nú Ögmundur ! Tvö góð prump og málið er dautt.
Aðalsteinn