Fara í efni

NÝJA BYLTINGU!

Krefjumst afsagnar leppstjórnar Alþjóðagjaldeyrissjóðsins! Burt með AGS! Leppstjórn Alþjóðagjaldeyrissjóðsins, hin Norræna velferðarstjórn, hefur endanlega afhjúpað vanhæfi sitt! Hún hefur ekki varið hagsmuni þjóðarinnar, og síst þeirra sem standa höllum fæti, gegn auðmagninu og eigendum þess, hvers fulltrúi AGS er! Nú á enn og aftur að ráðast á velferðarkerfið til að auðvaldið fái sitt! Hagsmunir þess hafa forgang, ekki alþýða Íslands! Næst mun velferðarstjórnin afhenda hina alþjóðalega auðvaldi auðlindir þjóðarinnar, og afnema hið félagslega rekna heilbrigðiskerfi og ráðast að menntakerfinu enn frekar! Rekum þessa ríkisstjórn af höndum okkar því hún er vanhæf, jafn vanhæf og stjórnin sem Búsáhaldabyltingin kom frá völdum! Hefjum Búsáhaldabyltinguna á ný! Og nú með pólitísku innihaldi! Burt með vanhæfa ríkisstjórn! Rekum AGS af höndum okkar! Vg virðist líta á þetta "vinstri" sitt, einsog skrautnælu frá Sigga í "Gull og Silfur." "Ég myndi nú ekki orða það þannig", er sjálfsagt eina svarið sem fæst frá Steingrím J.! Lifi Byltingin! Frelsi, jafnrétti, bræðralag!
Auðun Gíslason