Fara í efni

VANHUGSAÐ ORÐAGJÁLFUR

Ágæti Ögmundur.
Margt gott hefur þú látið frá þér fara, en þegar að Israel kemur virðist þú alltaf rjúka upp í vanhugsað orðagjálfur og yfirlýsingar frá þér og þeim sem alltaf virðast vera andstæðir gyðingaþjóðinni eru ótrúlega hugsunarlausar. Hvaða þjóð hefði leyft lest af skipum hlöðnum óþekktum vörum og greinilega mönnuðum af andstæðingum viðkomandi þjóðar að sigla inn í landhelgi sína og koma þessum óþekktu vörum athugasemdalaust í hendur þeirra sem vitað er að eru óvinir viðkomandi þjóðar. Þú hefur sýnt af þér ótrúlega frekju gagnvart þessari þjóð og ættir að biðjast opinberlega afsökunar eins og fleiri aðilar sem hegðað hafa sér á sambærilegan hátt. Við erum margir Íslendingar sem lítum a Israel sem vinaþjóð og viljum að svo verði áfram. Með von um að enn séu til hugsandi Íslendingar. Sigþór Guðmundsson