Fara í efni

KVEÐJUR TIL JÓNS BJARNASONAR

Sæll Ögmundur. Ég bið þig að koma eftirfarandi á framfæri hér á síðunni gagnvart Jóni Bjarnasyni, sjávarútvegsráðherra: Loks er kominn fram sjávarútvegsráðherra sem þorir að framkvæma. Framganga ráðherrans í kvótamálunum er til mikils sóma og jafnvel þó aðeins sé nartað í litlu tánna enn sem komið er, þá finnur risinn til. Vona að JB fái vinnufrið og hafir orku og vilja til áframhaldsins.
Bestu kveðjur,
Egill