Fara í efni

SEKTIN ER YKKAR ALLRA

Sæll Ögmundur.
1 lítil spurning frá mér til þín ... með smá skýringu minni og svo spurningar 2, 3, 4, 5 í lokin. Sleppi spurningu 6 enda ekkert sexý við þessa stjórn ... ekki frekar en maðkétið hræ. Spurning 1: Hver ber ábyrgð á ráðherravaldi Gylfa Magnússonar? Að mínu viti gerið þið það öll ... ekkert ykkar undanskilið ... sem myndið þann meirhluta sem leyfir þessum manni að vaða áfram sem blóðugur slátrari um heimili almennings. Ykkar ... allra ... er sektin! Þannig verður "tæranníið" til í valdakerfinu ... þegar hinir opinberu á ríkis-verð-tryggðum launum og lífeyri í stíl ... aðhafast ekkert ... bara þegja þunnu hljóði eða mala svona pínulítið til okkar sem lepjum dauðann úr skel ykkar. Spurning 2, 3, 4, 5: Er nú ekki lag að reka af sér slyðruorðið Ögmundur? Eða passar það ekki opinberum starfsmanni að hræra of mikið upp í rjómaskálinni? Kallast það til vinstri í dag? Kannski grænt í myglu rjómans?
Pétur Örn Björnsson