Fara í efni

ER EKKI MÁL AÐ LINNI?

Sæll Ögmundur.
Eftir að hafa horft upp á allan loddara-spuna ríkisstjórnar VG og Samfylkingar og valdbeitingu hennar til dýrðar AGS, sem Baldur Andrésson lýsir ágætlega í grein sinni "UM SKÚFFUR OG SKÖMM", þá leitar hún nú ákaflega á mig spurningin: Hvernig getur þú eiginlega stutt þessa ríkisstjórn ál-fursta, sæ-greifa, fjárglæpamanna, hrægamma og AGS? Þessi ríkisstjórn getur skreytt sig með hvaða orðaleppum sem er, en að mínu mati er þetta dæmigerð hægri-stjórn með ríkis-valds-vafningi! Er ekki mál að linni Ögmundur? Og að hér verði boðað til kosninga, enda hefur þessi stjórn ekki þjóðar-meirihluta, enda er hún SVIK OG SKÖMM! Þjóðin vill DEBATT og VIRKT LÝÐRÆÐI. Þessi ríkisstjórn beitir ÞÖGGUN. Þessi ríkisstjórn stingur höfðinu ofan í sandinn, en notar afturendann til að FRETA á almenning. Er ekki mál að linni Ögmundur? Eða er það megin-markmið þingmanna VG í slagtogi með Júró-liði Jóhönnu, að eyðileggja endanlega orðspor þeirra, sem telja sig til vinstri? Eða er þetta bara "einn stór misskilningur", eins og Steingrímur segir um alla gagnrýni?
Pétur Örn Björnsson