Fara í efni

GET EKKI VERIÐ Í SAMA FLOKKI OG ÞÚ!

Kæri Ögmundur,
Takk fyrir pistilinn sem ég hef beðið eftir allan daginn :) Ég hafði ákveðnar grunsemdir en eftir lesturinn get ég séð að það er nánast ómögulegt að við getum verið í sama flokki. Sem "einfaldur indjáni" í þínum flokki hef ég tvo valkosti. Hlusta á hræðsluáróður þinn og Davíðs Oddssonar eða að taka málefnalega afstöðu þegar samningur liggur fyrir. Því miður virðist sem lífsrými þitt og ritstjóra Morgunblaðsins fylli fullmikið fyrir minn smekk og þess vegna hef ég ákveðið að segja skilið við Vinstri Græna og mun á morgun segja mig úr flokknum.
kv. S.

Þakka bréfið. Ekki gleyma að fleiri eru í flokknum en ég og ekki allir á sömu skoðun og ég!  
Kv.,
Ögmundur