AÐ HRUNI KOMINN September 2010
Ágæt og þörf var fyrirspurn Ólafar Nordal um greiningu á því
hvers konar kröfur stæðu á bak við nauðungaruppboð frá hruni.
Einkennilegur kansellítónn var hins vegar í svörum
Dómsmálaráðherra. Margir mannmánuðir, mikið verk að kanna etc.
Maður næstum heyrir röddina í Mr. Humphreys í Yes Minister. Það er
ekkert verk mikilvægara en að reyna skilja stöðuna sem við erum í á
Íslandi og alveg hægt að fiska einhverja atvinnulausa fræðimenn í
slíka rannsókn, sem sennilega tæki nú ekki nema ca. mánuð fyrir tvo
menn. Gylfi Magnússon var frægur fyrir það í fyrra að ætla láta
athuga stöðu heimilana og vera búinn að því innan ...
Hreinn K
Lesa meira
Sammála þér Ögmundur. Þetta var fín ræða hjá Össuri.
Mannréttindi og náttúruvernd ættu að vera okkar aðalsmerki á
alþjóðavettvangi. Þarna skammaði Össur bæði Íran og Ísrael þannig
að ekki verðum við sökuð um hlutdrægni.
Viggó Jörgensson
Lesa meira
...ég skora hér með á þig til þess að endurskoða ákvörðun
vinnumálastofnunar varðandi atvinnuleyfi fyrir Jussanam da Silva
með hliðsjón af sérstökum aðstæðum hjá henni. Það eru á Íslandi
ekki fáeinar konur af erlendum uppruna í sömu stöðu og hún er í
augnablikinu þannig að ákvörðun mannréttindaráðuneytis um mál
Jussanam er fordæmisskapandi hvað varðar hagsmunum þess
hóps....
Luciano Dutra, þýðandi IS-PT.
Lesa meira
Það gerist ekkert ef ekki fer fram almennt uppgjör í okkar
samfélagi. Það getur ekki þessi ríkisstjórn gert það hefur sannað
sig. Það verða að fara fram Alþingiskosningar sem fyrst, annars
gerist ekkert. Þessi ríkisstjórn ætlaði að slá skjaldborg um
heimilin en það hefur ekki verið gert. Það hefur verið slegið
skjaldborg um fjármagnseigendur og fyrirtæki. Það getur ekki gengið
endalaust að atvinnulausir, fátækir, öryrkjar og eldriborgarar taki
á sig skerðingar meir.
Þórir Karl Jónasson
Lesa meira
Ég skrifaði þér tölvupóst þar sem ég hvatti þig til að koma
í veg fyrir það níðingsverk sem virðist vera í uppsiglingu gegn
Jussanam da Silva. Svo sá ég þig í ríkissjónvarpinu þar sem
fjallað var um þetta mál. E.t.v. hefur viðtalið við þig verið
klippt með óeðlilegum hætti, en þar sagðir þú ekkert um kjarna
málsins, þ.e.a.s. hvað þú hyggist gera til að koma í veg fyrir
aðfarir af þessu tagi. Það eru margir sem setja traust sitt á þig í
mannréttindamálum sem nú heyra undir þig sem ...
Einar
Lesa meira
Til hamingju með embættið. Ég hef mikla trú á þér í þessu
hlutverki og hef aldrei orðið ráðherraskiptum jafn fegin. Mig
langar að vita hvort mannréttindaráðuneytið hefur beitt sér
eitthvað í máli írönsku konunnar Sakine Ashtiani sem nú bíður þess
að verða grýtt til bana. Ef ekki, hvaða áform eru þá uppi um það?
Mig langar líka að heyra persónulegt álit þitt á þeirri stefnu sem
virðist algeng hjá íslenskum ráðamönnum, að senda ríkisstjórnum sem
verða uppvísar að mannréttindabrotum bréf en birta efni þeirra ekki
opinberlega...
Eva Hauksdóttir
Lesa meira
Sæll Ögmundur, Ég hvet þig til þess að endurskoða mál Jussanam
de Silva og veita henni landvistarleyfi, og jafnframt að sjá til
þess að vinnubrögð Útlendingastofnunnar verði endurskoðuð.
Bkv.
Sveinbjörn Þórðarson
Lesa meira
Er nú ekki mál að linni. Eigum við Vestmanneyingar nú að borga
meira fyrir að ferðast eftir þjóðvegi en aðrir landsmenn? Hvernig
væri að taka peningana sem fara í ESB viðræður sem gagnast engum og
verða felldar af þjóðinni?Við mótmælum þessum hækkunum ef af verður
því reynslan er sú að það sem einu sinni hefur verið hækkað lækkar
ekki. Við eigum ekki að gjalda fyrir eldgos og hönnunargalla .Við
hérna í eyjum þekkum eldgos vel og höfum fengið okkar skerf af
þeim. Hvernig væri að þið VG menn tækjuð ykkur tak ...
Inda Marý Friðþjóðfsdóttir
Lesa meira
Í ágætri grein í TMM segir Solla að fjórir hópar háskólamanna
hefðu átt að vita betur fyrir hrun: lögfræðingar,
viðskiptafræðingar, hagfræðingar og endurskoðendur. Það sem skýrsla
þingmannanefndarinnar boðar varðandi Landsdóm er ekkert annað en
endurkoma sérfræðingaveldisins sem kom okkar í þessa stöðu sem við
nú erum í. Sérfræðingaveldið er lífseigt og í skýrslu
þingmannanefndarinnar rekur hvert sig á annars horn. Annar hluti
hennar fjallar um umbætur í anda lýðræðis. Hinn hlutinn er þvælan
um Landsdóm sem tilraun til að koma lögfræðingunum til æðstu áhrifa
og valda yfir hinum svo kallaða Landsdómi. Eða hvað?
Þingmannanenfndin var undir ...
Kjartan Emil Sigurðsson
Lesa meira
...Á sama tíma er ungur borgarstóri í Reykjavík að taka á móti
sendimanni Keisarans í Kína sem hingað er kominn í nafni frelsis,
vináttu og hjálpsemis. Borgarstjórinn rétti sendimanninum bréf þar
sem óskað er eftir að rithöfundur, sem situr inni vegna skoðanna
sinna, samviskufangi, verði látinn laus. Bogarstjórinn virðist
óhræddur virða mannréttindi framar undirlægju. Hvað gerðist?
Sendiboði heimsveldisins hvarf á braut, eins og Fagin í Olíver
Twist, án þess að kveðja gestgjafa sinn. Ég tek ofan fyrir
borgarstjóranum, en er ekki kominn tími fyrir þjóðina að losna við
þennan forseta?
Eyjólfur Akrafjall
Lesa meira
Tryggingastofnun ríkisins(TR) verði gert óheimilt að skerða húsnæðisbætur langveikra og fatlaðra örorkulífeyrisþega og eftirlaunaþega í EIGNARHÚSNÆÐI, ef þeir leigja út frá sér.
Litið verði á leigutekjur sem atvinnufrítekjur sem er um 107. þús. kr. á mánuði hjá öryrkjum en u.þ.b. 200. þús. kr. á mánuði á öldruðum. SAMBÆRILEGT ÞVÍ SEM GERT ER Á NORÐURLÖNDUM. Ath! Öryrkjar og aldraðir mega vinna "úti" án þess að lífeyrisbætur skerðist. - Hver er munurinn á sitthvoru? Nú er bráðavöntun á húsnæði, jafnt fyrir ...
Björk Magnúsar og Grétudóttir
Lesa meira
Í ellinni eitthvað að vafra
eins og honum ber
Sagður nú sjötíu og fjagra
sóma drengurinn hér.
Nú árin telur ansi mörg
að telja þau ei nenni
Æskann farin fyrir björg
orðinn gamalmenni.
...
Höf. Pétur Hraunfjörð.
Lesa meira
Tímarnir breytast og mennirnir með
í pólitík margan þar snúning hef séð
ei lygina segi
villast af vegi
og fullreynt virðist á langlundargeð.
...
Höf. Pétur Hraunfjörð.
Lesa meira
Kyssa vöndinn Vinstri Græn
verja nú Bjarna kallinn
Veikluleg og alls-ekkert væn
vísast er stjórnin fallin.
Með verðbólgu og verðlag hátt
venjast má öllu smátt og smátt
ég lyktina finn
í sjöunda sinn
allt á fleygiferð í gjaldþrota átt.
...
Höf. Pétur Hraunfjörð.
Lesa meira
Allrahanda eðalglingur,
allt úr gulli í salnum.
Elísabet er Íslendingur,
ættuð úr Víðidalnum.
Fljótt ég þetta færði í tal,
fleiri kunna að meta.
Virðuleg kona úr Víðidal,
valdist í hásæti Breta.
...
Kári
Lesa meira
Fallin finnur ekki taktinn
farinn samstarfsvilji
þannig endar vina vaktin
vísast að leiðir skilji.
Til helvítis hann sendir börn
frá harðindum á Fróni
En þjóðfélagið þeim veitir vörn
frá viðsjárverðum Jóni.
...
Höf. Pétur Hraunfjörð.
Lesa meira
Flóttamenn hér fella stjórn
á fréttir agndofa góndi
Vinstri Græn vilja færa fórn
ekki Jón Blóðmerabóndi.
Flokkinn minkar fljótt og hratt
og fylginu þar tapar
Á samstarfinu fer Katrín flatt
að feigðarósi hrapar.
...
Höf. Pétur Hraunfjörð.
Lesa meira
Þeir fengu fyrst auðlindir okkar
framsókn og sjálfstæðisflokkar
í fátækt oss hnepptu
svo bankana hrepptu
í auðmennina Bjarni nú kokkar.
Á bláþræði hún hangir víst
með heldur lítið traustið
Um heiðar-leika lífið snýst
hún lafir fram á haustið.
...
Höf. Pétur Hraunfjörð.
Lesa meira
Ég hef staðið í þeirri trú að stefna VG væri sú að Ísland stæði utan hernaðarbandalaga, með öðrum orðum, gengi úr NATÓ. Nú er talað allt öðru máli. Annað hvort á VG þá að breyta gjörðum sínum til samræmis við gefin loforð til kjósenda eða lofa þeim öðru, annarri stefnu og þá væntanlega þeirri að Ísland verði áfram NATÓ-þjóð og tali ...
Jóhannes Gr. Jónsson
Lesa meira
Af fréttavakt Vísis 3. maí: “Joe Biden, forseti Bandaríkjanna, heiðraði í dag starfsmenn vopnaverksmiðju í Bandaríkjunum þar sem svokallaðar Javelin-eldflaugar eru framleiddar. Hann sagði Úkraínumenn nota þær til að gera Rússa að fíflum." Víða finnast fíflin eða er málið alvarlegra en svo að þetta sé bara auli að aulast?
Nei, þetta er forseti Bandaríkjanna að gleðjast yfir mætti drápstóla. Eflaust hefur verið klappað í ...
Jóel A.
Lesa meira
Allt Frá lesendum