Fara í efni

Á EKKERT AÐ GERA Í SPILAMÁLUM?

Ögmundur, margir treystu því að þú mundir gera eitthvað í sambandi við að banna spilakassa hér á landi. En þú vannst kannski eitthvað í því og svo hvað búið spil, ég túlka að þú hafir kannski fengið eitthvað undir borðið fyrir að þegja, sjáðu Össur gefur Árna gott orð hvað er að? Ef einhver getur gert eitthvað til þess að hjálpa spilafíklum, og sjáðu krakkana vaxa úr grasi í dag. Kannski þú, sjáðu í Englandi held ég að þú verðir að vera skráður til þess að komast inn.
jónbjörn

Þakka þér bréfið. Það er verið að vinna í þessum málum í Dómsmálaráðuneytinu að minni ósk og mátt þú treysta því að eitthvað gerist á þessu sviði til að setja skorður við fjárhættuspili.
Kv.
Ögmundur