Fara í efni

HVAÐ ÞARF TIL AÐ ICESAVE FARI Í ÞJÓÐARATKVÆÐA-GREIÐSLU?

Sæll Ögmundur.
Ég vil fá að spyrja þig hvað þarf til, til að þú gefir því atkvæði þitt að setja Icesave málið í þjóðaratkvæðisgreiðslu? Og hver er skoðun þín, viltu fá málið í þjóðaratkvæði?
Kv.
Ágúst

Ég mun ekki greiða því atkvæði á Alþingi að Icesave fari í þjóðaratkvæðagreiðslu. Þú spyrð um hvað þurfi til þess að mínu mati, að Icesave fari í þjóðaratkvæðagreiðslu.  Ég hef marglýst þeirri skoðun minni að ef verulegur hluti kjósenda krefst þjóðaratkvæðagreiðslu - ég hef stundum nefnt 20% - þá eigi að verða við slíkri kröfu.
Kv.
Ögmundur