Fara í efni

MÁL AÐ LINNI Í ICESAVE

Ég er ósammála Helga hér á síðunni sem hamast af hörku gegn Icesave. Sjálfur hef ég alla tíð verið á móti Icesave og lít á samninginn sömu augum og Helgi - fjárkúgun og ofbeldi annars vegar, undirlægjuhátt hins vegar. En nú er mál að linni. Vega þarf og meta af yfirvegun hagsmuni okkar Íslendinga. Það er slæmt að þjóðin rífi sig lengur á hol í deilum um þetta mál. Ekki gleyma þeim gríðarlega árangri sem náðist þegar Icesave góðu heilli var stöðvað í þinginu  af ykkur nokkrum í stjórnarmeirihlutanum. Sjálfstæðismenn lufsuðust með en árangurinn var ykkur að þakka, Indefence, formanni Framsóknarflokksins og nokkrum öðrum sem stóðu sig vel. Helgi! Ekki vanmeta þennan árangur sem náðist og telur tugi þúsunda milljóna. 
Grímur