Fara í efni

ICESAVE OG GENGIÐ

Sæll ögmundur.
Einstefnu áróður RUV í fréttaflutningi í gærkveldi fyrst í Kastljósi með tölvupósta sem fengnir hafa verið á bak við tjöldin og síðan viðtalið við Alistair Darling fyrrum fjármálaráðherra Breta eiginlega eyðilagði kvöldið fyrir mér en ef fullrar sanngirni hefði verið mætt hefði fréttastofan átt að upplýsa þjóðina um að vegna gengissigs hefði Icesafe skuldin hækkað um 7% og gæti allt eins farið í mínus 15% þegar líður á árið og hvernig hljóða varnaðarorð vegna gengisáhættu nú?
Þór Gunnlaugsson