Fara í efni

LIGGUR Á VEGNA ESB?

Blessaður og þakka þér fyrir þennan pistil. Það er okkur sumum svo mikilvægt að geta treyst því að þeir sem valdið hafa í umboði okkar kjósenda skulu ekki ganga gegn úrskurði hæstaréttar í svo stóru máli sem breyting á stjórnarskrá okkar er. Að ætla að fara bakdyramegin að þessu stóra máli er forkastanlegt. Flýtirinn, asinn og æðibunugangurinn hjá Samfylkingu er að sjálfsögðu þráin að breyta stjórnarskránni vegna ESB aðlögunar, en óbreytt stjórnarskrá bannar afsal fullveldis til annara ríkja.
Kv.
Helga.