Fara í efni

VIÐ FYLGJUMST MEÐ YKKUR!

Blessaður.
Nú fylgjast margir með ykkur stjórnarliðum, hvort aðeins sé um innantóm orð að ræða þegar að þið gagnrýnið ofurlaun bankastjóra. Menn hafa enga trú á því að þið getið ekki brugðist við með einhverjum hætti. Ég og fleiri bíðum eftir að sjá raunverulegar aðgerðir en ekki jarm og vandlætingu í fjölmiðlum eða á Facebook síðum. Þá þarf að fara yfir þessi mál með fulltrúum Bankasýslunnar. Þeirra afstaða er yfirvöldum til háðungar.
Bestu kveðjur,
Kristján G.