Fara í efni

GÓÐUR TÓNN

Sæll,
Var feginn að heyra tóninn í þér í umræðu um vantraustið. Það verður að klára kjörtímabilið til ljúka mest áríðandi málunum s.s. rannsóknina o.m.fl. Að fórna stjórninni til að hætta við ESB umsóknina finnst mér ótrúleg afstaða hjá Ásmundi og þar verið að leika sér með eldinn. Vinsamlega reyndu að bera klæði á vopnin! Gangi þér vel. Við þurfum á þér að halda í stjórn.
Víðir Gíslason,
Skálateigi 7 Akureyri