Fara í efni

GREIÐIÐ FYRIR FRAMKVÆMDUM

Góðan dag Ögmundur Jónasson. Mig langar til að vita hvenær Vg ætlar að greiða fyrir að framkvæmdir geti verið með eðlilegum hætti. Ekki láta prinsipp VG þvælast fyrir í atvinnumálum.
Arnar Ívar Sigurbjörnsson

Ég veit ekki betur en að ég geri allt sem í mínu valdi stendur til að greiða fyrir að framkvæmdir verði með "eðlilegum hætti". Á borði Innanríkisráðuneytisins eru ýmsar framkvæmdir í burðaliðnum sem eru mjög atvinnuskapandi, í samgöngumálum, bygging nýs fangelsis má nefna í því sambandi.  Þú þarft að útskýra mál þitt betur til að ég geti svarað fyrir mig.
Kv.
Ögmundur