Fara í efni

SAMRÁÐIÐ OG SAGAN

Samráðsskipan(Corporativism) er stjórnmálastefna sem lítur á samfélagið sem lífræna heild sem byggir á heildrænni félagslegri samstöðu þar sem hver hópur hefur ákveðið hlutverk líkt og líffæri í líkama. Hugmyndir af þessu tagi eru algengar í ýmsum trúarbrögðum og koma fyrir í mörgum stjórnmálastefnum sem leggja áherslu á samstöðu fremur en átök og samkeppni. Hún hefur einkum verið gagnrýnd þar sem hún leiðir til mikilla ríkisafskipta af stórfyrirtækjum og stofnunar ríkisrekinna stéttarfélaga eins og í Ítalíu fasista og Þriðja ríki nasista. Þessi ríki stilltu samráðshyggju upp gegn stéttabaráttu sem var lykilhugtak í sósíalisma. Orðið er líka oft notað sem skammaryrði yfir ástand sem einkennist af miklum ítökum fyrirtækja í stjórnmálum. (Wikipedia)
mkv.
Hreinn K.