Fara í efni

FORÐUM STÓRSLYSI!

Ágæti Ögmundur.
Ég undiritaður vil biðja þig að reyna þitt besta sem ráðherra í ríkisstjórn Íslands að forða því stórslysi sem áformað er varðandi niðurskurð í heilbrigðiskerfinu. Mikil óánægja ríkir meðal flokksmanna og stuðningsmanna flokksins, sem ég þekki til, um þessar fyrirætlanir. Við getum ekki varið þær gagnvart fólki og erum kallaðir svikarar. Eithvað sem ég persónulega get ekki sætt mig við. Við blasir og er þegar í gangi fylgishrun flokksins og hugsanleg endalok. Ég má til með að benda á að matarholurnar leynast víða. Til dæmis hjá kirkjunni. Í Kópavogi eru fjórar kirkjur. Maður bara spyr hvað þar er í gangi. Hugsanlega má einnig skera niður dagpeninga hjá emættismönnum á ferðalögum erlendis o.fl.
Kveðja,
Guðlaugur Gísli Bragason
kt.2904624289