Fara í efni

KOMINN TÍMI Á ÞIG!

Ég hef marg oft sent inn athugasemd vegna þess að ég fæ aldrei sent neitt eins og var, þú sendir mér tölvupóst Ögmundur um að þú ætlaðir að laga þetta en það hefur ekki verið gert ! Nú ert þú Ögmundur búinn að skipa starfshóp um Guðmundar og Geirfinns málið. Þú skipaðir Arndísi lögfræðing sem er fulltrúi hjá Ólafi Helga Kjartanssyni, sýslumanni á Selfossi. Nú held ég Ögmundur að þú ættir að fara að skipta um starsvettvang, ég er ekki einn með þessa skoðun.
Kv.
Þórir Karl Jónasson

Ástæðan fyrir því að þú hefur ekki fengið send fréttabréf Þórir Karl er sú að ég hef ekki sent nein slík út  í mjög langan tíma að einu undanskildu nýlega. En þessu ætla ég að breyta og taka upp fyrri hátt og senda út fréttabréf reglulega.
Arndís Soffía Sigurðardóttir er lögreglukona og lögfræðingur og er í starfshópnum vegna eigin verðleika.
Hvers vegna í ósköpunum ætti ég að skipa í þennan mikilvæga starfshóp aðra en einstaklinga sem standa í allra fremstu röð - þegar veltur á að vinna vandasamt verk sem unnið er á mína ábyrgð?
Kv.
Ögmundur