Fara í efni

LEIÐIR SKILJA

Kæri Ögmundur.
Eftir að hafa borið óskoraða virðingu fyrir þér í mörg ár (þú varst flokksstjórinn minn í unglingavinnunni forðum) og fundist sjónarmið okkar fara saman lengi, þá er það því miður ekki þannig lengur. Afstaða þín (og Guðfríðar) í Haarde-málinu er mér gersamlega óskiljanleg, og hefur orðið til þess að ég sendi VG eftirfarandi skeyti: Kæri viðtakandi. Ég segi mig hérmeð úr flokki Vinstri grænna vegna vonbrigða af völdum sundurlyndis þingmanna flokksins í Haarde-málinu. Vinsamlegast afskráið mig úr skrá félagsmanna flokksins nú þegar. Þótt VG hafi að einhverju leyti - amk frá sjónarhóli peninga- stofnana - staðið sig vel í tiltektinni eftir hrunið, finnst mér þið hafa brugðist hrapallega að öðru leyti, og ég hef ekki lengur trú á að VG þjóni framtíðarhags- munum íslensks almennings.
Með velvild,
Ísak Harðarson
kt: 110856-2889