Fara í efni

TREYSTI YKKUR EKKI

Alveg hef ég misst allt álit á þér, Guðfríði Lilju og Jóni Bjarnasyni. Þið eruð öflugustu bandamenn stjórnarandstöðunnar og sannið enn og aftur að vinstri menn sjá sjálfir um að klúðra stjórnarsamstarfi áður en kjörtímabilin enda. Af hverju getið þið ekki tekist á um þessi mál innan þingflokka og komið fram út á við sem heilsteyptur hópur þingmanna í stað þess að vera alltaf með þessar dæmalausu uppákomur. Alveg óþolandi. Get ekki séð að hægt sé að treysta ykkur VG liðum fyrir atkvæðum framvegis.
Kristjá G.