Fara í efni

HROSSAKAUP?

Sæll Ögmundur.
Ég vona að þú sjáir af þér og greiðir atkvæði gegn tillögu Bjarna Bendiktssonar. Ég hef kynnt mér rök þín og finnst þau vond. Þú ert einn þriggja stjórnmálamanna sem ég þekki og hef alltaf stutt en í þessu máli veður þú villu vegar og ég vona þú sjáir ljósið í þessu máli því annars get ég ekki stutt þig framar. Annars lyktar þessi afstaða þín af pólitískum hrossakaupum.
Stefán Þorgrímsson

Pólitískt lyktarskyn þitt er að bregðast Stefán. Engin hrossakaup eða hver í ósköpunum ættu þau að vera?
Kv.,
Ögmundur