Fara í efni

LÁTTU BLÓÐIÐ SVELLA!

Sæll Ögmundur.
Hvað ætlar þú minn kæri vinur, að híma lengi undir vörumerki hins kasúldna og svikula hræs, VG, sem Steingrímur J og Svavarsklíkan ríkja yfir og munu ekki sleppa takinu á fyrr en lokið verður við að þröngva þjóðinni til aðlögunar að hinu yfirþjóðlega alríkis-stofnanaveldi, ESB (EUSSR) með tilsjón AGS og erlendra vogunarsjóða og hrægamma og banka-auðræðis?
Ég hef lengi treyst þér Ögmundur og vil gjarnan geta kosið þig í næstu kosningum, en það get ég ekki nema þú segir skilið við hið kasúldna og svikula hræ, hið forræðisvædda VG, og gangir til samstarfs við þann flokk, sem Lilja Mósesdóttir vinnur nú af fullum krafti við að koma á fót. Ef þú og Lilja sameinið krafta ykkar, þá verð ég ekki í vafa um að ég mun kjósa Samstöðu - flokk lýðræðis og velferðar. Megi gott og heiðarlegt fólk, sem þú og Lilja og fleiri, standa saman til góðra verka og réttláts samfélags til lýðræðis og velferðar.
Og trúðu mér Ögmundur, að svo hugsa flestir þeirra, sem treysta þér, en hafa sagt sig úr kasúldna og svikula hræinu. Láttu blóðið svella Ögmundur og virkjaðu þinn hugsjóna- og baráttuanda með því að muna að öllum glymur klukkan fyrr en síðar; að standa saman eða sundrast ella. Ég vona að þú veljir samstöðu til lýðræðis og velferðar með fólki sem þú getur treyst og mun treysta þér og meta þína visku og reynslu. Stöndum saman Ögmundur ... með Lilju.
Jón Jón Jónsson