AÐ HRUNI KOMINN Mars 2012
...Þetta er hárrétt lýsing hjá "spámanninum" Steingrími, en
undarlegt er að hann sjái það ekki sjálfur, að öll þessi orð gilda
einnig um ríkisstjórn Jóhönnu, Össurar og ... haltu þér nú fast
Ögmundur minn ... hans sjálfs. Er ekki kominn tími til að þessum
ósköpum linni? Lífverðir og alles, en varla uber alles? Ég trúi
ekki öðru en að svo vænn drengur sem þú ert, amk. innvið beinið
Ögmundur minn, sért mér sammála að nú sé tími til kominn að virkja
lýðræðið og boða til kosninga. Það sagði amk. foringi þinn, sem
hangir þó enn á beininu sem hundur á valdasjúku roði.
Jón Jón Jónsson
Lesa meira
Hlustaði á umræðuna um Schengen á þingi nýlega og það er
hárrétt sem þar kom fram að hlutnirnir breytast hratt.
Frakklandsforseti hótar að ganga úr þessu samstarfi og Bretar neita
að hlusta á svona vitleysu og segjast ætla að ráða því sjálfir
hverjir heimsæki landið og halda glæpamönnum frá. Þetta er fullgilt
ESB ríki en menn þar á bæ leggja ekki í slag við þá vegna allt
annarra hagsmuna nefnilega á hernaðarsviðum. Dómsmálaráðherra getur
tekið hér upp vegabréfaskyldu ...
Þór Gunnlaugsson
Lesa meira
Davíð Oddsson segir í viðtali í Verslunaskólablaðinu að hann
hafi barist fyrir setuverkfalli í MR sem þú hafir beitt þér gegn
sem "fulltrúi kerfisins". Svona skipast veður í lofti segir hann
því nú sért þú til vinstri en hann til hægri og má skilja að eðli
máls samkvæmt hefðir þú átt að vera verkfallsmaður. Er þetta rétt
Ögmundur? Sjá ...
Haffi
Lesa meira
...Það er við stjórnmálamenn að sakast að glæpagengi fóru að
skjóta rótum hvert á fætur öðru í landinu eftir að stjórnvöld fóru
að fjársvelta lögregluna og hlustuðu ekki á kröfur þeirra og
viðvaranir. Það á að nota skattpeninga í landvarnir og lögreglu en
ekki eyða þeim í Brussel-fáráðið og ICESAVE.
Og hvað verður langt í að þið dragið Evrópusambands-umsóknina til
baka, umsóknina sem við, þjóðin vorum aldrei spurð um og hátt í 70%
okkar eru andvíg og vilja ekki? Og hvað verður langt í að þið lokið
íhlutunarstofunni sem sett var upp fyrir 1 stjórnmálaflokk í okkar
´lýðræðisríki´ til að ...
Elle
Lesa meira
...Hverju vill hæstvirtur dómsmálaráðherra svara þessum
alvarlegu ásökunum? Ég, sem óbreyttur og heiðarlegur villiköttur
krefst greinargóðra svara frá þér Ögmundur Jónasson. Gilda hér bara
landslög fyrir aumingjana, Les miserables, en simmsalabimm
ráðherrar megi fimbulfamba og veðsetja þjóðina beinustu leið til
helvítis, án þess að dómsmálaráðherrann rumski í rekkjutjöldunum og
plussi hirðarinnar?
Villkötturinn
Lesa meira
...Það þarf að drífa í því að byggja nýtt fangelsi og halda
áfram að leggja áherslu á að vinna gegn skipulagðri glæpastarfsemi.
Við viljum ekki sjá þessa óværu hér á landi og verðum að sporna við
fótum. Við höfum ennþá tækifæri og tíma til að koma í veg fyrir
þetta.
Ingibjörg Elsa Björnsdóttir
Lesa meira
...Þarf lögreglan engar heimildir lengur - og má fólk ekki sjá
þær þegar þær eru fyrir hendi? Sérð þú ekkert athugavert við að
lögreglan sé að berhátta fólk - og það á sama tíma og hún neitar að
reka grunaða barnaníðinga? Í Guðanna bænum stoppaðu þetta rugl og
opnaðu umræðuna um óháð innra eftirliti. Mundu að þú ert æðsti
yfirmaður lögreglunnar - og það ert ÞÚ sem ert ábyrgur fyrir þessum
grófu mannréttindarbrotum. Kær kveðja -
Símon
Lesa meira
Þakka þér Ögmundur fyrir greinina í Fréttablaðinu í vikunni. Þú
virðist vera eini pólitíkusinn sem heldur uppi vörnum fyrir okkur
sem viljum ekki selja ( gefa) landið útlendingum. Samt hef ég heyrt
að margir og þá innan ESB hafi keypt hér jarðir út um allt. Er það
rétt ?
Edda.
Lesa meira
...mér finnst viðhorf þín til útlendinga, hvort sem það eru
Kínverjar, Rússar eða fólk frá meginlandi Evrópu, vera komin á
ískýggilegt stig, farin að nálgast hreina andúð. Hugsaðu þinn gang
aðeins...
Gunnar (er sjálfur af erlendum uppruna).
Lesa meira
Til hamingju með nýju lögin um gjaldeyrishöft. Það er ekkert
annað en mismunun að greiða Bretum og Hollendingum í Evrum og
Pundum úr þrotabúi Landsbanka en innlendum kröfuhöfum í ...
Hreinn K
Lesa meira
Á fátæktinni fékk að kenna
og faðirinn snortin sari
Þá alvaran fór upp að renna
úr varð Gunnar Smári.
Þá sósíalisminn í sálina rann
er samhjálp kynntist drengur
Við kapítalisma ei kunni hann
enda kallaður alþýðu fengur.
...
Höf. Pétur Hraunfjörð.
Lesa meira
... Engar vangaveltur voru um málið og þá hvort ekki hefði verið rétt að leyfa fólkinu að fara til síns heima eins og við hin gerum ef við smitumst af veirunni! Er það þá líka forréttindafrekja? Ferðamennirnir sem hingað komu vitandi um sóttkvíarskylduna færu síðan á hótel og greiddu þar að sjálfsögðu fyrir sig. Í fréttatíma Sjónvarps var ekki boðið upp á slíka málefnalega umfjöllun.
Fréttastofa sem setur málin svona fram í viðkvæmu deilumáli veldur ekki hlutverki sínu um að vera upplýsandi og málefnalegur miðill heldur kemur fram eins og dómgreindarlaus áróðursvél fyrir sjónarmið valdhafa.
Í þessum viðkæmu málum er beinlínis óábyrgt að ...
Sunna Sara
Lesa meira
Það var illa til fundið af Kára Stefánssyni í Kastljósi Sjónvarpsins að sveija á Brynjar Níelsson, alþingismann, og uppnefna hann fyrir að hafa vogað sér að fara til útlanda. Ef Brynjar Níelsson hlítir sóttvarnareglum á hann ekki að þurfa að sitja undir svívirðingum, hvorki af hálfu Kára Stefánssonar né annarra. Hvert stefnir þetta þjóðfélag okkar?
Jóhannes Gr. Jónsson
Lesa meira
Brynjar Trump brögðin kann
fátt bítur á guttann
Á sólarströnd nú situr hann
og sendir okkur puttann.
Höf. Pétur Hraunfjörð
Lesa meira
Að standa í þessu er stöðugt puð,
styðjum við Frakka og Belga.
Við trúum á okkar evrópska guð,
inngöngu í sambandið helga.
Að sitja á þingi og sulla með leir,
sannleikann móta ég hálfan.
Þruglið úr höfðinu þoli ekki meir,
þess vegna kæri mig sjálfan.
Evrópu selja áfram völd,
engar leiðir góðar.
Braska þau á bakvið tjöld,
beygja stoðir þjóðar.
...
Kári
Lesa meira
Hælið fyrir ríka öskurapa: Öskur og hvæs taugatrekktra og ríkra í hátalarakerfi, gegn óþolandi kyrrð öræfa landsins og gegn kyrrlæti valdra náttúrudásemda, varð stofn að ríkiskynningu til erl.ferðamanna nýlega.”Þeir ríku gráta mest” er sagt, þeir búa oftast við sálarkvalir. Slíkt mannval er einmitt æskilegast gesta til landsins, peningar þeirra í boði. “ Komið og öskrið á kyrrðina” (gegn greiðslu), er því tilboð íslenskra stjórnvalda til ríkisfólks heimsins, þess sem oftast grætur í hjarta sér þótt úr gulli sé gert. Þekkingu á bágu sálarlífi auðmanna er vel til að dreifa á Íslandi, hana má fénýta alþjóðlega. “ Komið til Islands, grátið, gólið, hvæsið, öskrið að vild” og græjurnar eru til reiðu. Vonin er ...
Grímur
Lesa meira
Nú fer páska helgin í hönd
hér margir láta sig dreyma
Vandamál sjáum víða um lönd
verum öll dugleg heima.
...
Höf. Pétur Hraunfjörð
Lesa meira
Ég er sammála þér varðandi skynsemina, hún hlýtur að þurfa að fá að vera með. Ferðamálaráðherrann sem fór í partí með vinkonum sínum í miðju kófinu lætur nú loka annað fólk inni í hótelfangelsi og ríkisstjórn sem lætur milljarða í að auglýsa að fólk eigi að drífa sig til Íslands, lokar svo gestina inni í fangabúðum sem skattgreiðendur þurfa að borga fyrir. Eru engin takmörk? Var verið að tala um skynsemi eða kannski skort á henni? Auðvitað átti ekkert að auglýsa að fólk ætti að koma við þessar aðstæður! Og þarf ekki að ræða við ferðafyrirtækin sem auglýsa helgarferðir til að sjá eldgos? Hvernig væri að slá í einn fund í þjóðaröryggisráðinu þar sem þau sem í því sitja gætu tekið púls hvert á öðru? Það er orðið eitthvert skammhlaup í heilabúunum sýnist mér.
Sunna Sara
Lesa meira
Stjórnvöldin undir stórútgerð hlaða,
stórlega margt er fúið.
Fjárglæframenn valda feikna skaða,
færist á þjóðarbúið.
...
Kári
Lesa meira
Nú vorið nálgast bjart og hlýtt
Nú kemst ég brátt á sjóinn
Nú verður hér fleyi úr fjöru ýtt
Nú farinn er allur snjórinn.
...
Höf. Pétur Hraunfjörð
Lesa meira
Allt Frá lesendum