Fara í efni

ÞÚ ERT ÁBYRGUR!

Jæja félagi, hvað þarf til þess að þú gerir eitthvað? http://www.pressan.is/Frettir/LesaFrett/kona-i-hafnarfirdi-osatt-eftir-rassiu-15-logreglumenn-ruddust-inn-sneru-ollu-a-hvolf-og-berhattudu-mig  Ég veit um feiri svona mál, þar á meðal eitt þar sem lögreglan hafði ekki heimild, í því máli var fórnarlambinu ekki misþyrmt kynferðislega, en hún var laminn - og ég veit að fórnarlambið hefur reynt að fá þig til að gera eitthvað í málunum. Finnst þér þessir fasistatilburðir flottir - hvað á maður að halda? Þarf lögreglan engar heimildir lengur - og má fólk ekki sjá þær þegar þær eru fyrir hendi? Sérð þú ekkert athugavert við að lögreglan sé að berhátta fólk - og það á sama tíma og hún neitar að reka grunaða barnaníðinga? Í Guðanna bænum stoppaðu þetta rugl og opnaðu umræðuna um óháð innra eftirliti. Mundu að þú ert æðsti yfirmaður lögreglunnar - og það ert ÞÚ sem ert ábyrgur fyrir þessum grófu mannréttindarbrotum. Kær kveðja -
Símon