Fara í efni

GOTT APRÍLGABB HJÁ RÚV!

Mér fannst aprílgabb RÚV gott og takast vel. Þingkonurnar Guðfríður Lilja og Ólína þorvarðar sýndu húmor og frjálslyndi að taka þátt í glensinu. Auðvitað vita allir að ekki stendur til í að fara í Vaðlaheiðargöng eftir allar skýrslurnar um að framkvæmdin gangi ekki með vegtollum einum. Það var forsenda framkvæmdarinnar. En grínið var skemmtilegt. Takk RÚV. Takk Guðfríður Lilja og Ólína. Hláturinn lengir lífið
Sunna Sara