Fara í efni

BARNALEGUR OG HEIMSKULEGUR

Skrifar þú Ögmundur virkilega svona barnalega? Talar um skítuga skó og Ísland sem "hráefnanýlendu" vegna Grímsstaðamálsins. Nú er það ekki svo að Kínverjinn ætlar að fara að vinna einhver hráefni hér, heldur fara út í einhvern ferðamannabisness (að sögn). Af hverju ekki að gagnrýna þetta á trúverðugan hátt í stað svona heimskulegra upphrópana? Var það kannski Páll Hannesson sem skrifaði þennan pistil?
Torfi Stefánsson

Ég skrifa alla mína pistla sjálfur. Það er síðan annarra að leggja á þá mat eins og þú gerir samkvæmt þinni eigin dómgreind. 
Ögmundur