Fara í efni

EKKI HUGSA Í SEKÚNDUBROTUM!

Ótrúlegur er hroki kínverska auðmannsins að leyfa sér að ráðast á íslenskan ráðherra fyrir að vilja verja hagsmuni lands og þjóðar. Hvernig verður hann eftir að búið er að byggja þorpið á Grímsstöðum og flugvöllinn? Þá hótar hann að fara með alla peningana ef hróflað verður við honum og undirlægjur og hagsmunatengt fólk mun þá grátbiðja hann að vera kjurran. Við munum Kanann á Miðnesheiði og landann í því samhengi. Hugsum þúsund ár fram í tímann en ekki í sekúndubrotum.
Jóel A.