Fara í efni

ÓÆTINU VERÐI EKKI KYNGT

Sæll Ögmundur, nú hafa kræsingarnar sem iðnaðarráðherra býður upp á í Nubo-málinu verið bornar á borð. Fnykinn leggur þegar um allt. Margir hafa talað af viti gegn ásælni stórþjóðar í okkar garð og ég vona að þau ríku rök séu ekki gleymd heldur muni duga svo óætinu verði ekki kyngt. Fram með náttúruverndarrökin, upp gegn græðginni! Baráttukveðjur,
Ásdís