Fara í efni

SAMNINGI BER AÐ HAFNA

Ágæti Ögmundur. Ég vona svo heitt og innilega að þú hafnir Nubo um beiðni sína. Sem venjuleg manneskja með lítið vit á pólitík þá er ég ekki svo skyni skroppin að ég finni ekki skítalyktina af þessum blessaða samningi. Ég er nokkuð viss um að margir kjósendur eru sama sinnis og ég.
Helga

Þakka bréf og hvatningu. Vandinn er sá að málið komið í ferli þar sem mín aðkoma er takmörkuð. Því miður. En ég læt mína skoðun í ljós og beiti mér í málinu að því marki sem ég get.
Ögmundur