Fara í efni

EKKI Á ALLT KOSIÐ

Icesave. Ráðherrann veit ekki í hvaða ríki EFTA-dómsóllinn er og kannski veit hann heldur ekki svo mikið um Icesave. Það færir þér betur Ögmundur að láta minna þegar þú svarar innsendurum með hroka. Umræðpólitíkin virðist þér fjarri.
Pétur Kristjánsson

Það er misskilningur hjá þér að ég viti ekki hvar EFTA-dómstóllinn á heimilsfang. Ég veit líka hvar ESA vistast og einnig ESB. Hitt er sennilega rétt hjá þér að ekki sé ég eins vel að mér um Icesave og þú virðust vera. En það verður ekki á allt kosið í þessu lífi.
Ögmundur Jónasson