Fara í efni

GÍBRALTAR NORÐURSINS?

Grímsstaðir+Finnafjörður= Gibraltar norðursins.Nú ríður á að standa fastur fyrir Ögmundur. Sem sagnfræðingi þarf ekki að kynna fyrir þér sögu Gíbraltar, sem Bretar hafa aldrei ljáð máls á að láta af hendi til Spánar, þrátt fyrir margítrekaðar kröfur í gegnum aldirnar um að skila því til Spánar. Nú er mikil vá fyrir dyrum hér. Nupo og hans nótar sýna hið rétta andlit sitt. Það má aldrei verða að þeim verði selt tugir fer.km. land í formi lóðarleigu eða með sölu til 99 ára. Þetta eru landráð af þessum umboðsmanni Nupo eins og hann leggur málið upp. Ef landsstjórnin heimilar höfn í Finnafirði og síðan herskála á Grímsstöðum eftir það sem á undan er gengið í þessu landi hruns sbr. Al Thani ofl., þá er illa komið fyrir okkur landsmönnum. Minnumst þess sem gerðist á Gibraltar og er nú að gerast í Afríku á vegum Kínverja. Þá er stutt að rifja upp framkomu nýríkra Kínverja í Halmstad. Þeim er ekki treystandi og þá munar ekkert um að flytja 1 til 2 milljónir kínverskra verkamanna á norðaustur hornið.
Kv.
MBB