Fara í efni

JAFN RÉTTUR Á AÐ GILDA

Sæll Ögmundur. Af hverju geta ekki öfgafemínistarnir skilið það að jafnréttí eiga að vera sjálfsögð mannréttindi, óháð kynferði? Það að mismuna út frá kynferði, svokölluð "jákvæð mismunun" brýtur gegn almennum mannréttindalögum og einnig gegn 65. gr. Stjórnarskrár lýðveldisins Íslands, lögum laga okkar: 65. gr. Allir skulu vera jafnir fyrir lögum og njóta mannréttinda án tillits til kynferðis, trúarbragða, skoðana, þjóðernisuppruna, kynþáttar, litarháttar, efnahags, ætternis og stöðu að öðru leyti. Konur og karlar skulu njóta jafns réttar í hvívetna.
Jón Jón Jónsson