Fara í efni

FARSÆLDAR-LEIÐIN

Ég var að lesa umfjöllun þína hér á síðunni um baráttuna gegn glæpahópum og tilvísan þar  í útvarpsviðtal og mbl.is: https://www.ogmundur.is/is/fra-lesendum/abyrgd-okkar-allra
Mér þykir vænt um að sjá og heyra að þú gleymir ekki að ræða um forvarnarstarfið gagnvart ungu ógæfufólki sem hrekst inn í glæpahópa. Þetta má ekki gleymast. Menn mega ekki missa sig í ofstækistali. Það þarf að taka á þessum málum af festu og öryggi en jafnaframt öfgalaust. Það er farsældarleiðin. Og hún skilar árangri. 
Sunna Sara