ÓÁBYRG VINNUBRÖGÐ Á ALÞINGI
Ég vil þakka þér framgöngu þína í barnalagamálinu; að vilja
tryggja fjármagn til að lögin verði annað og meira en orðin tóm.
Málið er mér skylt því ég starfa á sýslumannsskrifstofu þar
sem engin króna er aflögu til að sinna einu sinni lögboðnum
verkfnum sem okkur ber að sinna. Að bæta við fleiri verkefnum án
nægilegs viðbótarfjármags er í hæsta máta óábyrgt.
Ljóst er að þau sem nú boða ný vinnubrögð í stjórnmálum undir
merkjum Bjartrar framtíðar gerast sjálf sek um gamaldags
og óábyrg vinnbrögð.
Starfsmaður á sýsluskrifstofu