TAKK PÁLL
Gott hjá þér Ögmundur að vekja athygli á lesendabréfi Páls H.
Hannessonar um áform ESB að einkavæða vatnið. Ég skoðaði
sjónvarpsfréttina sem Páll vísar á og vil ég þakka honum
árveknina.
Sunna Sara
Gott hjá þér Ögmundur að vekja athygli á lesendabréfi Páls H.
Hannessonar um áform ESB að einkavæða vatnið. Ég skoðaði
sjónvarpsfréttina sem Páll vísar á og vil ég þakka honum
árveknina.
Sunna Sara
...Og það er fleira rétt. Það er rétt hjá Jóhönnu
Sigurðardóttur, forsætisráðherra, að á sigurstund eiga menn ekki að
leita sökudólga. Og menn eiga að vera stórir í sniðum, eins
og fyrsti þingmaður NA-kjördæmis segir svo réttilega. Þá sem
hafa verið niðurlægðir, úthrópaðir, og meira og minna úthýst á
hinum pólitíska vettvangi ætti hins vegar að biðja afsökunar fyrir
að láta menn gjalda Ice-save afstöðunnar. Ekki endilega opinberlega
og kannske ekki ...
Ólína
Vegna frétta af sölu höfuðstöðva Orkuveitunnar vakna spurningar.
Eftirfarandi er tekið af vef mbl.is: "Straumur fjárfestingabanki
gerði tilboðið fyrir hönd óstofnaðs
félags með fyrirvara um áreiðanleikakönnun og
endanlega fjármögnun." (
af mbl.is) Hverijr eiga svo Straum í dag?: "Með samþykkt
nauðasamninganna var staðfestur sá vilji almennra kröfuhafa að
endurvekja fjárfestingabankastarfsemi á Íslandi. Almennir
kröfuhafar Straums-Burðaráss voru að stærstum hluta
erlendir bankar og fjárfestingarsjóðir."
(af vef
Straums) Þarna er verið að...
Húsmóðir í austurbænum
Sæll Ögmundur, umræða er alltaf góð en ekki fengum við að sjá
mikið af henni áður en þú settir í gang teimi til að gera frumvarp
að lögum til að banna klám. Eg vil geta farið á netið og keypt mér
klám eða hvaða efni sem er án þess að þú eða einhverjir aðrir séu
að reyna að hafa vit fyrir mér. Það sem er bannað finnur sér farveg
á einn eða annan hátt og þá þar sem ógerningur er að fylgjast með
þvi ...
Bjarni Tryggva
...Nú kemur framkvæmdastjórn ESB fram með nýtt directive, samið
samkvæmt ráðleggingum og ábendingum fulltrúa vatnfyrirtækja og
fjármálahákarla, sem þrýstir á einkavæðingu vatns í öllum löndum
ESB. Ekki bara í Portugal og Grikklandi, þar sem þríeyki ESB
krefjast einkavæðingar opinberra vatnsfyrirtækja, heldur á það að
verða almenna reglan. Og hvernig er svo vatnalögum Katrínar
Júlíusardóttur háttað; allt grunnvatn er í eigu landeiganda; þegar
og ef við göngum í ESB verður sveitarfélögum þrýst til að selja
vatnsréttindi sín í hendur Vífilfells eða annarra slíkra. Lög um
vatnsveitur á Íslandi, sem Valgerður setti, opna eins og þú veist
manna best, alveg á ...
Páll H. Hannesson
Er svo sammála Ögmundi, löngu kominn tími til að stjórnvöld taki
í taumana...
Þorbjörg
... Mig lagnar til þess að rifja upp með þér dálitla sögu um
mann sem ég átti samleið með árið 1983. Þessi maður barðist fyrir
okkur sem höfðum keypt okkur íbúð og hélt ræður um hvað
verðtryggingin væri óréttlát, hann stofnaði meira að segja samtök
um málefnið. Árin frá hruni hef é velt fyrir mér hvar þessi maður
er staddur í dag því að ekki hefur heyrst frá honum sami
eldmóðurinn og var hér áður. Hann er kannski búinn að greiða níður
sín verðtryggðu lán og vill fá ...
Viðar Magnússon
...Mikið mæðir á þér vegna hælisleitenda sem hingað koma
flugleiðis meðal annars skilríkjalausir. Það liggur klárt fyrir að
á upphafsstað þurfa þeir að framvisa skilríkjum en rífa þau síðan í
sundur um borð í vélinni og sturta í salerni. Þegar svo háttar er
bersýnileega verið að blekkja útlendingastofu og þess vegna ætti að
snúa öllum við og senda til baka á upphafsstað því við berum ekki
ábyrgð á eyðileggingu skilríkja. Rétta leiðin væri að sækja um hæli
í sendiráðum vorum og málin afgreidd á þann hátt en þeir sem koma
frá Afríku ríkjum í tugþúsunda vís til Ítalíu sitja fastir á eynni
Lampedusa og fá ekki að fara...
Þór Gunnlaugsson
...Fordómar forstjóra Útlendingastofnunar eru hneyksli.
Forstjórinn gerir lítið úr þeim sem eru á flótta og þurfa að leita
sér hælis og talar um það sem "aðlaðandi kost"! Menn séu bara að
misnota sér "gestrisni" Íslendinga og komi hingað til að fá frítt
fæði og húsnæði!! Og geti verið hér lengi sem hælistúristar af því
að málsmeðferð sé svo "hrikalega löng"!Væntanlega þekkir hún ekki
til á því "fjögurra stjörnu hóteli" þar sem hælisleitendur eru
meira og minna lokaðir inni á, því ekki mega þeir einu sinni kaupa
sér mat í öðrum sveitarfélögum! Mín skoðun er sú að ...
Páll H. Hannesson
... Þegar spurt var fyrir áramót hvað liði útgáfu á
löglegri sjóferðabók fyrir íslenska sjómenn, þá vildir þú kynna þér
málið áður en þú tjáðir þig um það. Er eitthvað nýtt að
frétta...?
Sigvaldi Torfason
... Ég las grein þína um kjarnorkuvopnin og fór á slóðina sem þú gafst inn á ræðu þína í þinginu um NATÓ og “öryggisstefnu” Íslands. Mikið vildi ég að þó ekki væri nema ein rödd á Alþingi sem talaði eins og þú gerðir en það er ENGINN þingmaður sem það gerir. Er að undra að fólk missi trúna á þinginu og þeim sem þar sitja í umboði vinstri stefnu! Ef gagnrýni er hreyft á NATÓ þá er það lágvært hvísl til að sýnast!
Runólfur
Kosningarnar koma hér,
kanntu fléttu snúna?
Bankasýslan býður þér,
að byrja ránið núna.
Kári
Kosningaárið er komið með stæl
kysumst föðmumst verum indæl
staðreyndin er
að Íhaldið fer
auðvitað verðum ánægð og sæl
Líklega er kreppan kominn á ról
keimlík um heimsins byggðu ból
þá sér hver raftur
gjaldþrotin aftur
og endist víst framyfir næstu jól.
...
Höf. Pétur Hraunfjörð.
Meðvirkni er mikið böl,
magnast hún á þingi.
Ef þar skamma áttu dvöl,
alltaf ferð í hringi.
...
Kári
Talskona Pírata, Þórhildur Sunna Ævarsdóttir, sagði í útvarpsfréttum að vonandi yrði komandi þing gott og að menn færu ekki sð karpa um smámál og tók síðan andköf til að frábiðja “málþóf” og mátti skilja að þar vísaði hún í málflutning Miðflokksins um orkupakkann.
Mér þótt sá málflutningur góður en hinn slakur, svo ekki sé meira sagt, frá hendi Pírata, Samfylkingar og Viðreisnar. Flokkur fólksins var í lagi framan af en lyppaðist síðan niður. Stjórnarflokkana...
Jóhannes Gr. Jónsson
Uppruni raforku á Íslandi er 57% jarðefnaeldsneyti, 34% kjarnorka og endurnýtanleg raforka einungis 9%. Þessi tilhögun og brask hjálpar umhverfissóðum að sýna hreinna bókhald.
Það sem ég velti fyrir mér, hver er ábyrgð íslenskra fyrirtækja sem selt hafa kjarnorkuveri upprunaábyrgð sem verður svo fyrir stórslysi, s.b. Tjernobil, er ekki eigandi upprunans sökudólgurinn eða ...
Rúnar Sveinjörnsson
Þennan gamla þekkjum veg,
þreyttan sýna vanga.
Þú færð banka, þjóðgarð ég,
þannig skiptin ganga.
Ýmsa galla á því sé,
ætla að fylla á tanka.
Þegar vilja þvætta fé,
þá menn nota banka.
...
Kári
Þegar græðir þjóðarbú,
þá við heimtum lykla.
Rán á banka ræðum nú,
reynsluna höfum mikla.
Tíminn þessi táknræni,
tækifæri í búskap.
Frelsi ásta og fjölkvæni,
fleiri en tveir í hjúskap.
...
Kári
Bjarni selur bankann fljótt
bætir við fjölskyldu eignir
þó Engeyingarnir eigi gnótt
eflaust verða fegnir.
SA hagnaðist um fúlgur fjár
fljótlega kaupa því banka
En alþýðan sveltur og er sár
sé Drífu með þunga þanka.
...
Höf. Pétur Hraunfjörð.
Ef að drýpur eitthvað smér,
öllu vill hún sanka.
Íslenska mafían ætlar sér,
eignarhald á banka.
Kári
... Upprisa BakkiSilicon nú um páska er að líkum hafin yfir mannlegan, röklegan skilning. Birtist því sem undur. Rétt eins og ófarasagan frá upphafi rekstrar 2018 til stöðvunar 2020 er látin standa óútskýrð, eins og gildir um athæfi æðri máttar-valda. Fullvíst er að “Hönd Guðs” kemur að páskaupprisu BakkiSilicon sú sem líknsöm er oft þeim þurfandi ...
Lesa meiraHún er sérkennileg umræðan um „afglæpavæðinguna“. Nú liggur fyrir breytingarfrumvarp[i] í heilbrigðisráðuneytinu um að ekki verði lengur refsivert að hafa í vörslu sinni svonefnda „neysluskammta“ eiturlyfja. Er frumvarpið þar komið í „samráðsgátt“ (sýndarmennskugátt). Málið er angi af öðru miklu stærra máli sem kalla má „undanhaldið mikla“ og lýsir sér í uppgjöf og undanhaldi á mörgum sviðum – allt í nafni „framfara“ auðvitað. Þetta er í stuttu máli geigvænleg þróun og alls ekki góð, öðru nær. Eftir stendur að fíkniefnaneysla er harmvaldur allra sem í henni lenda og aðstandenda þeirra ...
Lesa meira... Andsvar hugsandi vinstrimanna er að hrista af sér doðann, endurmóta róttæka umbótastefnu í vinstriátt, losa sig undan hægriáráttu eigin forystu. Það er ekki bara þörf, það er brýn nauðsyn ef ekki á illa að fara.
Í stuttu máli: Endurreisn vinstri róttækni i sjónmálum er nauðsyn, sem binda þarf víðtækum umbóta- vilja í stjórnarháttum. Lágkúrustandi vinstriafla þarf að ljúka sem fyrst. ...
Á þessu vefsvæði er réttilega bent á fáránleikann sem fylgir svokölluðum upprunaábyrgðum raforku. Þær eru hluti af blekkingastarfsemi og braski með rafmagn, þar sem „orkusóðar“ geta keypt sér syndakvittanir af hinum sem sóða minna (eða lítið). Með þessu móti er kaupandinn, neytandinn, látinn halda að hann kaupi „hreina raforku“ (græna). Neytandinn er með öðrum orðum blekktur. Eins og lesendur vita gekk Bretland endanlega úr Evrópusambandinu nú um áramótin. Á heimasíðu bresku lögfræðistofunnar Pinsent Masons er fjallað um skattahliðina á þessu svindl-fyrirkomulagi, í grein ...
Lesa meiraÞingið í Washington samþykkti að ákæra Donald Trump til embættismissis fyrir uppreisnaráróður („incitement of insurrection“). Alvarlegra fyrir hann var samt það bann sem hann fékk frá samskiptamiðlunum. Og það segir meiri sögu. Eftir upphlaupið við bandaríska þingið í Capitol er sitjandi Bandaríkjaforseti útilokaður frá öllum helstu samskiptamiðlum (og um leið stærstu fjölmiðlum) netheima, Facebook, Instagram, Twitter, Google ...
Lesa meiraMörgum stjórnmálamönnum er tamt á tungu, eftir nýjustu atburði í Washington, að segja árás hafa verið gerða á „lýðræðið“. En það gleymist alltaf að láta fylgja með svarið við spurningunni: lýðræði hverra? Lýðræði valdaklíkunnar í Bandaríkjunum, lýðræði almennings? Forsetanefnur jafnt sem ráðherrar apa hver upp efir öðrum staðlaðar skoðanir um „árás á lýðræðið“ og látast stórhneykslaðir á því. Trúverðugleiki þessa fólks sem þannig talar er hins vegar enginn. Fólk sem lifir og hrærist í fílabeinsturnum er í órafjarlægð frá veruleika almennings, hvort heldur er í Bandaríkjunum eða á Íslandi. Í máli þess er ætíð holur hljómur ...
Lesa meira