Fara í efni

LEIFTURSÓKN VG GEGN SKULDA-VANDANUM?

Tvívegis á jafnmörgum dögum hef ég heyrt nýjan formann VG lýsa því yfir að flokkurinn ætli að grynnka á húsnæðisskuldum fólks á fimm til átta árum. Ekki veit ég til þess að nokkur önnur manneskja, amk. ekki svotitluð málsmetandi, hafi látið detta sér í hug að beita jafn hægfara og innistæðulausri skuldakyrkingu á landsmenn. Ég leyfi mér því að spyrja: Er þetta 5-8 ára plan formannsins „leiftursókn" VG gegn skuldavanda heimilanna?
Kveðja,
Hulda