SAMMÁLA PÁLI
Sæll félagi Ögmundur.
Svona fór um sjóferð þá! En í stað þess að dvelja við það liðna vil
ég aðeins spá í spilin sem sá Framsóknarmaður sem ég var fram að 12
ára aldri. Ef ég væri formaður Framsóknarflokksins í dag, sýndist
mér einboðið að mynda stjórn með VG og Samfylkingu. Í öllu falli
myndi ég forðast eins og heitan eldinn að fara í stjórn með
Sjálfstæðisflokki. Gerði ég það væri ég að stefna góðum árangri
Framsóknar í kosningunum í stórhættu. Framsókn, öfugt við
Sjálfstæðisflokkinn, hefur farið í gegnum vissa endurnýjun á
hugmyndum sínum og gert upp við hægri arfleifð Halldórs og Finns.
Sú endurnýjun Framsóknar fer beint í vaskinn í hugum fólks ef
endurtaka á stef hrunstjórnarinnar. Það er sá blettur á fortíð
Framsóknar sem flokkurinn þarf að bráðnauðsynlega að afmá. Fari
Framsókn í stjórn með Sjöllum, blasir við á ný einkavæðingarferli
heilbrigðiskerfisins og allur sá djöfulskapur sem fólki er í fersku
minni, mun endurtaka sig. Fari Framsókn hins vegar til vinstri, á
flokkurinn mun betri möguleika á að festa sig í sessi í þeim
þyngdarflokki sem hann kom sér í núna í kosningunum. Hann getur
leyft sér að koma á móts við þarfir fólksins í landinu, sem ítrekað
hefur lýst vilja sínum til að efla velferðarkerfið og vernda
náttúruna. Með því að fara í stjórn með VG og Samfylkingu nær
Framsókn einnig að styrkja andstöðuna við ESB innan VG og fær
Samfylkinguna til að láta af ESB- áráttu sinni. Það yrði öllum
þessum flokkum, landi og þjóð til heilla. Hvað sýnist þér
Ögmundur?
M.b. kv.,
Páll H.
Þakka bréfið Páll.
Ég er þér sammála.
Ögmundur