Fara í efni

TIL HAMINGJU MEÐ ÍSLYKILINN!

Það er alveg rétt hjá þér að Íslykillinn hjá Þjóðskrá  - nafnspjaldið á netinu sem þið nefnið svo  - markar mikilvægt framfaraspor í rafvæðingu opinberrar þjónustu og í rafrænu lýðræði. Það er mikilvægt að auðkennismálin verði hjá opinberri stofnun en ekki einkavætt eins og áður hafði verið ákveðið. Ég þekki nokkuð vel til þessara mála í bankakerfinu og undraði mig oft á andvaraleysi hins opinbera í þessum efnum þar til nú. Þakka þér fyrir að standa vaktina Ögmundur.
Enginn ráðherra hefur verið eins áhugasamur um rafræna þjónustu og rafrænt lýðræði og þú.
Jóel A.