AÐ HRUNI KOMINN Júní 2013
... Þorsteinn Pálssson á sér þannig ekki bara
pólitíska fortíð heldur líka hagsmunatengda samtíð. Ágætt að hafa
þetta í huga við lestur helgarpistla hans í Fréttablaðinu! Í
skrifum sínum talar Þorsteinn Pálsson
máli Sjálfstæðisflokksins og bankanna. Ekki gleyma því!
Sunna Sara
Lesa meira
Að því þú virðist vera einn af bestu þingmönnum og lætur þig
allt mannlegt varða að þá langar mig að spurja að einu. Allir
Íslendingar sem hafa haft búsetu lengur en 6 mánuði á Íslandi eiga
að vera inni í þessu svokallaða velferðarkerfi. Eru einhverjar
undantekningar á því? Má undanskilja aðila undan þessu
velferðarkerfi, vegna t.d. skilnaðarmála foreldra. Ég spyr vegna
þess að við erum í þessari stöðu og best bara að setja hér inn link
á blogg-ið mitt, þar sem þetta kemur ...
Kjartan
Lesa meira
... Ég las grein þína um kjarnorkuvopnin og fór á slóðina sem þú gafst inn á ræðu þína í þinginu um NATÓ og “öryggisstefnu” Íslands. Mikið vildi ég að þó ekki væri nema ein rödd á Alþingi sem talaði eins og þú gerðir en það er ENGINN þingmaður sem það gerir. Er að undra að fólk missi trúna á þinginu og þeim sem þar sitja í umboði vinstri stefnu! Ef gagnrýni er hreyft á NATÓ þá er það lágvært hvísl til að sýnast!
Runólfur
Lesa meira
Kosningarnar koma hér,
kanntu fléttu snúna?
Bankasýslan býður þér,
að byrja ránið núna.
Kári
Lesa meira
Kosningaárið er komið með stæl
kysumst föðmumst verum indæl
staðreyndin er
að Íhaldið fer
auðvitað verðum ánægð og sæl
Líklega er kreppan kominn á ról
keimlík um heimsins byggðu ból
þá sér hver raftur
gjaldþrotin aftur
og endist víst framyfir næstu jól.
...
Höf. Pétur Hraunfjörð.
Lesa meira
Meðvirkni er mikið böl,
magnast hún á þingi.
Ef þar skamma áttu dvöl,
alltaf ferð í hringi.
...
Kári
Lesa meira
Talskona Pírata, Þórhildur Sunna Ævarsdóttir, sagði í útvarpsfréttum að vonandi yrði komandi þing gott og að menn færu ekki sð karpa um smámál og tók síðan andköf til að frábiðja “málþóf” og mátti skilja að þar vísaði hún í málflutning Miðflokksins um orkupakkann.
Mér þótt sá málflutningur góður en hinn slakur, svo ekki sé meira sagt, frá hendi Pírata, Samfylkingar og Viðreisnar. Flokkur fólksins var í lagi framan af en lyppaðist síðan niður. Stjórnarflokkana...
Jóhannes Gr. Jónsson
Lesa meira
Uppruni raforku á Íslandi er 57% jarðefnaeldsneyti, 34% kjarnorka og endurnýtanleg raforka einungis 9%. Þessi tilhögun og brask hjálpar umhverfissóðum að sýna hreinna bókhald.
Það sem ég velti fyrir mér, hver er ábyrgð íslenskra fyrirtækja sem selt hafa kjarnorkuveri upprunaábyrgð sem verður svo fyrir stórslysi, s.b. Tjernobil, er ekki eigandi upprunans sökudólgurinn eða ...
Rúnar Sveinjörnsson
Lesa meira
Þennan gamla þekkjum veg,
þreyttan sýna vanga.
Þú færð banka, þjóðgarð ég,
þannig skiptin ganga.
Ýmsa galla á því sé,
ætla að fylla á tanka.
Þegar vilja þvætta fé,
þá menn nota banka.
...
Kári
Lesa meira
Þegar græðir þjóðarbú,
þá við heimtum lykla.
Rán á banka ræðum nú,
reynsluna höfum mikla.
Tíminn þessi táknræni,
tækifæri í búskap.
Frelsi ásta og fjölkvæni,
fleiri en tveir í hjúskap.
...
Kári
Lesa meira
Bjarni selur bankann fljótt
bætir við fjölskyldu eignir
þó Engeyingarnir eigi gnótt
eflaust verða fegnir.
SA hagnaðist um fúlgur fjár
fljótlega kaupa því banka
En alþýðan sveltur og er sár
sé Drífu með þunga þanka.
...
Höf. Pétur Hraunfjörð.
Lesa meira
Ef að drýpur eitthvað smér,
öllu vill hún sanka.
Íslenska mafían ætlar sér,
eignarhald á banka.
Kári
Lesa meira
Allt Frá lesendum