Fara í efni

LÁGKÚRAN OG GRÆÐGIN MUN KOMA Í BAKIÐ Á OKKUR!

Ekki vil ég sjá þetta auðmannadekur í ferðþjónustunni sem þú réttilega gagnrýnir hér á síðunni. Best er að fá hingað gott fólk - hvort sem það er ríkt eða blankt -  sem hefur áhuga á landinu, náttúrunni eða meningunni. Þessi hryllilega gróðafíkn sem gætir sífellt meira í ferðaþjónustunni er lágkúra og þjóðinni til skammar. Hún mun auk þess koma í bakið á öllu því ágæta fólki sem hefur verið í hófsemd og af vandvirkni og alúð að byggja hér upp góða ferðaþjónustu.
Jóel A.