Fara í efni

KLÁRIÐ ÁTVR!

Ég vona að þið klárið þetta ÁTVR mál á Alþingi í eitt skipti fyrir öll. Þetta rugl er búið að voma yfir lengi; verið þráhyggjumál nokkurra þingmanna Sjálfstæðisflokksins og nú eru þeir búnir að fá Bjarta framtíð og Pírata með sér. Það eru flokkar sem virðast haga sér eins og vindurinn blæs hverju sinni. Kannski breyta þau um skoðun við skoðanakannanir sem sýna að mikill meirihluti er á móti þessu. En ég vil sjá atkvæðagreiðslu um málið á Alþingi. Ef ráðherrar í ríkisstjórn, ég tala nú ekki um heilbrigðisráðherrann sem jafnframt er lýðheilsuráðherra, greiðir atkvæði með því að setja áfengi í matvörubúðir, þá munu margir kjósendur snúa við þeim baki. Ég þekki sjálfstæðismenn sem myndu ekki fylgja flokknum aftur ef þetta yrði ofan á.
Hulda