Fara í efni

UMRÆÐAN VERÐI HÓFSTILLT

Ég er starfandi lögreglumaður og fylgist með umræðunni um vopnamálin. Mér finnst að verið sé að blása þetta mál of mikið út. Hins vegar fer því fjarri að lögreglumenn almennt telji það vera rétt að þeir beri vopn enda stendur það ekki til! Það er ágætt að fá þessa umræðu en hún þarf að vera hófstillt og gæta að því að gera mönnum ekki upp skoðanir, hvorki þér einsog gert hefur verið né lögreglunni. Þar er að finna mismunandi sjónarmið og afstöðu einsog annars staðar.
N.N.