RÍKIÐ Á AÐ KAUPA GRÍMSSTAÐI Á FJÖLLUM
Ég er því algerlega sammála að ríkið á að kaupa Grímsstaði á
Fjöllum. Þetta er spurning um framsýni og fyrirhyggju. Þessar miklu
jarðir í kraganum umhverfis hálendi Íslands og víðernin eiga
að vera í almannaeign. Þessar jarðir eiga ekkert sameiginlegt með
hefðbundnum landbúnaði. Þetta eru útivistarsvæði en viðkvæm og
þarfnast verndar.
Sunna Sara