HÆTTU BARA
Forsætisráðherrann vildi ekki fara
fann engan tíma og ákvað að spara
´ann situr gleiður
en landinn reiður
æ farðu nú Sigmundur hættu bara.
Pétur Hraunfjörð
Forsætisráðherrann vildi ekki fara
fann engan tíma og ákvað að spara
´ann situr gleiður
en landinn reiður
æ farðu nú Sigmundur hættu bara.
Pétur Hraunfjörð
Takk Ögmundur !
Þetta voru ömurlegar fréttir, en ég hef alltaf hræðst þessa
ríkisstjórn og skilaboðin sem við fáum daglega frá þeim herbúðum.
Ekkert verra getur komið fyrir þjóðina en einkavæðing
heilbrigðiskerfisins, ekkert. Kveðja,
Edda
... Varðandi það sem þú skrifar um málefni Sinnum og Ásdísi
Höllu og fl.,þá finnst mér þú vera aðeins of fljótur á þér að dæma.
Vissulega er þetta fólk að vinna að málefnum tengdum heilsu, en ég
get sagt með vissu um að það er ekki gert til þess að eyðileggja
neitt, heldur til þess að bjóða upp á nýja og fjölbreyttari
valkosti í heilbrigðisþjónustu. Það eru ekki allir að með niðurrif
heilsuþjónustunnar á heilanum, þó þeir séu ekki sammála þér. Við
höfum oft verið ósammála um aðferðir í gegnum árin, en við vorum
alltaf sannfærðir, báðir, um að við værum að vinna að málefninu af
heilindum ...
Páll Svavarsson
Mig langar til að þakka Ásdísi Höllu fyrir að koma hreint fram
og tala fyrir gullfæðingum fyrir ríka fólkið og einhverju lakara
fyrir þær mömmur sem ekkert gull eiga. Og takk Bjarni fyrir að
skipa framkvæmdastjóra einkavæðingarfyrirtækis sem helsta gæslumann
íslenska fjármálakerfisins. Og takk Kristján Þór fyrir að mæta með
Ásdísi Höllu að opna herlegheitin og sýna hug ríkisstjórnarinnar
til einkavæðingar heilbrigðisþjónustunnar. Takk öll fyrir að vera
heiðarleg og minna okkur á það hver þið eruð. Gaman væri að þið
minntuð okkur aftur á fyrir næstu kosningar! Aftur takk!!!
Sunna Sara
Nú eignast elítan bankana senn
enda kaldrifjaðir kaupsýlumenn
áfallið munið
þjóðarhrunið
öll alþýðan hérna man þetta enn.
Aumur gerist Andrés minn
allir heim rata
Verður því þarna um sinn
þingmaður pírata?
...
Höf. Pétur Hraunfjörð.
Svarið núna set á blað,
sannan vanda leysum.
Þjóðareignin þýðir að,
þjófum skorðu reisum.
Þjóðarklafa þekkið smið,
þing til grafar tryggja.
Kvótahafar keppast við,
kreppugjafir þiggja.
Kári
Grímulaust í gegnum árin
gróðans ennþá njóta
í samfélaginu blæða sárin
undan sjálfseignarkvóta.
Bankasölu nú Bjarni þráir
Þó bæti lítið okkar hag
Engeyingarnir hér eru fáir
en græðgi þeirra fag.
...
Höf. Pétur Hraunfjörð.
Sá ég þjófa, bankabófa,
braskið prófa, leita hófa.
Því, því, því, því.
Aftur spilling enn á ný.
Kári
Eftir níu mánuði megum við kjósa
framfærsluna múgurinn sér óljósa
saman þá stöndum
valið þar vöndum
ég frjálshyggjunni alls ekki hrósa.
Höf. Pétur Hraunfjörð.
Lesa meira
... Ég las grein þína um kjarnorkuvopnin og fór á slóðina sem þú gafst inn á ræðu þína í þinginu um NATÓ og “öryggisstefnu” Íslands. Mikið vildi ég að þó ekki væri nema ein rödd á Alþingi sem talaði eins og þú gerðir en það er ENGINN þingmaður sem það gerir. Er að undra að fólk missi trúna á þinginu og þeim sem þar sitja í umboði vinstri stefnu! Ef gagnrýni er hreyft á NATÓ þá er það lágvært hvísl til að sýnast!
Runólfur
Kosningarnar koma hér,
kanntu fléttu snúna?
Bankasýslan býður þér,
að byrja ránið núna.
Kári
Kosningaárið er komið með stæl
kysumst föðmumst verum indæl
staðreyndin er
að Íhaldið fer
auðvitað verðum ánægð og sæl
Líklega er kreppan kominn á ról
keimlík um heimsins byggðu ból
þá sér hver raftur
gjaldþrotin aftur
og endist víst framyfir næstu jól.
...
Höf. Pétur Hraunfjörð.
Meðvirkni er mikið böl,
magnast hún á þingi.
Ef þar skamma áttu dvöl,
alltaf ferð í hringi.
...
Kári
Talskona Pírata, Þórhildur Sunna Ævarsdóttir, sagði í útvarpsfréttum að vonandi yrði komandi þing gott og að menn færu ekki sð karpa um smámál og tók síðan andköf til að frábiðja “málþóf” og mátti skilja að þar vísaði hún í málflutning Miðflokksins um orkupakkann.
Mér þótt sá málflutningur góður en hinn slakur, svo ekki sé meira sagt, frá hendi Pírata, Samfylkingar og Viðreisnar. Flokkur fólksins var í lagi framan af en lyppaðist síðan niður. Stjórnarflokkana...
Jóhannes Gr. Jónsson
"... Greiningin sem Biden gerir, um baráttu milli lýðræðisafla og einræðisafla heimsins, er fölsk þó ekki væri nema í ljósi mikilvægustu bandamanna Bandaríkjanna í Miðausturlöndum. Ekki nóg með það: Bandaríkin ásamt með bandamönnum í NATO sem skreyta sig mikið með lýðræðismerkimiðum er EINI AÐILI SEM HERNAÐARÓGN STAFAR AF á alþjóðavettvangi nú um stundir. Ekki nóg með það: Af langri sögu hefur okkur lærst að því meira sem bandarísk stjórnvöld tala um að tryggja „lýðræði“ (Sýrland eða Úkraína), mannúð og mannréttindi (Írak, Júgóslavía, Líbía) eða kvenréttindi (Afganistan) í öðrum löndum þeim mun meiri dauði og eyðilegging eru í vændum. Bandarískt „lýðræði“ er banvænn útflutningur ..."
Lesa meira... Ef við stöndum ekki gegn ritskoðun og árásum á borgaraleg réttindi núna, og líka þegar þau beinast gegn einhverjum sem okkur kann að mislíka við hér og nú, munum við kannski aldrei endurheimta tjáningarfrelsið. Völd einkarekinna alræðisríkja á borð við Amazon, Google og Facebook verða óhugnanleg og algjör ...
Lesa meiraÞað er gott að hugsa í lausnum, sérstaklega ef lausnirnar gagnast þjóðinni sem heild. Allmörg dæmi má þó finna um að „lausnir“ á Alþingi séu sniðnar sérstaklega að hagsmunum braskara og fjárglæframanna. Þetta gerist vegna þess að fólk sem fengið hefur umboð kjósenda („látið kjósa sig“) misfer með umboð sitt og missir öll tengsl við umbjóðendur sína. Segist að vísu í viðtölum oft vera í „góðu sambandi“ við kjósendur sína. En eitt er að þiggja kaffibolla í kjördæmi sínu og annað að gæta hagsmuna almennings á þingi ...
Lesa meira... Hugmyndin um „fullkominn samkeppnismarkað“ felur þannig í sér marga seljendur og kaupendur, samleitni „vöru“ sem um ræðir, góðar upplýsingar fyrir seljendur og kaupendur og hindrunarlausan aðgang eða útgöngu á markaði. Með öðrum orðum, menn geta hafið samkeppni á markaðnum eða hætt þegar þeim sjálfum hentar ...
Lesa meira... Upprisa BakkiSilicon nú um páska er að líkum hafin yfir mannlegan, röklegan skilning. Birtist því sem undur. Rétt eins og ófarasagan frá upphafi rekstrar 2018 til stöðvunar 2020 er látin standa óútskýrð, eins og gildir um athæfi æðri máttar-valda. Fullvíst er að “Hönd Guðs” kemur að páskaupprisu BakkiSilicon sú sem líknsöm er oft þeim þurfandi ...
Lesa meira