Fara í efni

TAKK FYRIR AÐ SÝNA FRAMAN Í YKKUR

Mig langar til að þakka Ásdísi Höllu fyrir að koma hreint fram og tala fyrir gullfæðingum fyrir ríka fólkið og einhverju lakara fyrir þær mömmur sem ekkert gull eiga. Og takk Bjarni fyrir að skipa framkvæmdastjóra einkavæðingarfyrirtækis sem helsta gæslumann íslenska fjármálakerfisins. Og takk Kristján Þór fyrir að mæta með Ásdísi Höllu að opna herlegheitin og sýna hug ríkisstjórnarinnar til einkavæðingar heilbrigðisþjónustunnar.
Takk öll fyrir að vera heiðarleg og minna okkur á það hver þið eruð. Gaman væri að þið minntuð okkur aftur á fyrir næstu kosningar! Aftur takk!!!
Sunna Sara