ESB SINNAR HAFA ALDREI VILJAÐ ATKVÆÐA-GREIÐSLU
Undanfarna daga höfum við fylgst með ESB sinnum, utan þings og
innan, fjargviðrast yfir meintu ofbeldi stjórnvalda í ESB
málum. Sagt er að stjórnarmeirihlutinn komi ekki vilja sínum
fram í þinginu. Látið er að því liggja að það sé vegna þess að ekki
sé meirihluti fyrir því á Alþingi að slíta viðræðum við
ESB.
Auðvitað sjá allir hið sanna í málinu. Stjórnin hefur ekki komið
sínu fram vegna málþófs í þinginu af hálfu þeirra sem aldrei hafa
viljað atkvæðagreiðslu um málið - bara átök til að styrkja ESB
málstaðinn í sessi.
Ef þetta er ekki tvískinnungur þá veit ég ekki hvað tvískinnungur
er. Og ég sé ekki betur en VG sé með í þessum ESB-leiðangri
Samfylkingar og Bjartrar framtíðar og náttúrlega Pírata sem að
eigin sögn eru í stöðugu áfalli yfir því að fólk skuli leyfa sér að
vera á annarri skoðun en þau.
Jóhannes Gr. Jónsson