Fara í efni

KAÞÓLSKA KIRKJAN BORGI

Ég er sammála því sem þú sagðir einhvers staðar í fjölmiðlum, að Kaþólska kirkjan á að borga sanngirnisbætur fyrir þau ungmenni sem urðu fyrir ofbeldi í Landakotsskóla og langar mig til að hvetja ríkisstjórnina til að höfða mál á hendur kirkjunni til að ná í þessa peninga. Það má hins vegar ekki tefja að gengið verði frá greiðslum til fórnarlamba. Skaðabótakrafa ríkisins á hendur kirkjunni á að koma síðar. Kaþólska kirkjan er moldrík og á ekki að komast upp með að horfast ekki í augu við eigin misgjörðir. Slíkt er ekki sæmandi.
Hafdís Guðmundsdótir