RÍKISSTUDD EINOKUN GENGUR EKKI UPP
						
        			26.04.2015
			
					
			
							
Ég var að hlusta á þig í Samfélaginu á RÚV þar sem þú varst að tala um rafræn skilríki. Þar langaði mig að bæta í vopnabúrið gegn Auðkenni að þegar verið er að treysta á markaðsöflin þá er afdráttarlaus frumforsenda að til staðar sé samkeppni, annars falla þau um sjálf sig. Ríkisstudd einokun einkaaðila veit bara á eitt.
Magnús Bergur Magnusson
Sæll og þakka þér bréfið. Þetta er hárrétt ábending.
Kv., 
Ögmundur